Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
Fotbolti.net
Fotbolti.net
Professional
Icelandic
Hlustaðu á podcastþættina vinsælu af Fótbolta.net. Fjölbreyttir þættir um allar hliðar fótboltans.
Website
Episodes
Episodes
300
04 September 2026
Útvarpsþátturinn - Haukar fljúga upp og lokaumferðir framundan
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net er frumfluttur í hlaðvarpsútgáfu þessa vikuna. Umsjón: Elvar Geir og Tómas Þór.Guðjón Pétur Lýðsson þjálfari Hauka er gestur þáttarins en Hafnarfjarðarliðið er komið upp í Lengjudeildina.Lokaumferðir eru framundan um helgina, síðasta umferð fyrir tvískiptingu Bestu deildarinnar og svo ræðst hvaða lið fellur með Ægi úr Lengjudeildinni.Í lok þáttar er sumarglugginn í...
02 September 2026
Uppbótartíminn - Glötuð tækifæri og stórt kærumál
Guðmundur Aðalsteinn og Arnar Páll Garðarsson komu sér vel fyrir í Coke stúdíóinu og fóru yfir 17. umferð Bestu deildar kvenna. Toppliðin tvö hikstuðu bæði, aftur. FH hefur núna fengið tvö tækifæri til að komast á toppinn en ekki nýtt sér þau. Á hinum enda töflunnar er spennan gríðarleg.Þá var rætt um stórt kærumál sem getur haft mikil áhrif á framhaldið í Bestu deildinni. Þátturinn er í boði...
02 September 2026
38 umferðir - Er hægt að selja Bruno eftir þessa frammistöðu?
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
02 September 2026
Enski boltinn - Hull í draumalandi og glugganum lokað
Það eru fjögur lið með fullt hús stiga eftir tvo leiki í ensku úrvalsdeildinni. Það eru Arsenal, Chelsea, Manchester City og.. Hull City.Það er óhætt að segja að Hull sé í draumalandi eftir fyrstu tvo leikina en fyrir tímabil var þeim spáð 20. sæti í flestöllum spám.Guðmundur Aðalsteinn fékk því Friðleif Friðleifsson, mikinn Hull stuðningsmann, í heimsókn í Coke stúdíóið í kvöld. Haraldur Örn...
01 September 2026
Innkastið - Ljúgum til um titilbaráttu
Innkastið eftir 21. umferð Bestu deildarinnar. Elvar Geir, Valur Gunnars og Runólfur Trausti.Þátturinn var tekinn upp strax eftir stórleik KR og Víkings. Fjallað er um leikinn sjálfan og allt í kringum hann. Auðvitað er síðan farið yfir allar helstu sögulínur í kringum hina leiki umferðarinnar.
01 September 2026
Harkið - Hiti í 3. deildinni
Harkið fór yfir stærstu atvikin í tuttugustu umferð í 2. og 3.deild karla og val á Macron leikmönnum umferðarinnar í báðum deildum. Uppgjör 3.deild: 07:14 Uppgjör 2.deild:44:48 Spá: 01:29:00Harkið er i boði Serrano, AB Sportvörur og Macron. Þáttastjórnendur eru Guðbjörn Smári Birgisson og Grétar Óskarsson.
01 September 2026
Kaffispjallið: Blæti fyrir takkaskóm og nýtt tækifæri í KR
Arnar Freyr Ólafsson, markvörður KR, er nýjasti viðmælandi Kaffispjallsins. Líkt og vanalega var farið yfir víðan völl en Nördahornið og Hraðaspurningarnar eru að sjálfsögðu á sínum stað.
29 August 2026
Útvarpsþátturinn - Helgin er svo lengi að líða
Elvar Geir og Benedikt Bóas eru í hljóðveri í þætti dagsins og með þeim er Valur Páll íþróttafréttamaður á Sýn.Hitað verður sérstaklega upp fyrir komandi stórleik í Bestu deildinni, viðureign KR og Víkings á þriðjudag. Aðrir leikir í Bestu deildinni, Lengjudeildin, Infantino og enski boltinn koma svo auðvitað líka við sögu.
26 August 2026
38 umferðir - Chelsea kom, Joao og sigraði
Nýr þáttur af 38 umferðum er kominn í loftið en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.Þeir settust niður í Coke stúdíóinu og tóku yfirferð á fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar sem lauk á mánudag, fóru yfir liðin sín, framtíðarplön og tóku stöðuna á 38 umferðir x Fótbolti.net deildinni þar sem efsta...
25 August 2026
Enski boltinn - Martraðarbyrjun Man Utd og hver stoppar Arsenal?
Enska úrvalsdeildin hófst um helgina með látum en fyrstu umferðinni lauk í gærkvöldi.Manchester United og Tottenham fengu martraðarbyrjun, Arsenal lita illviðráðanlega út og það var baulað á Alexander Isak í endurkomunni á St James' Park. Er Chelsea kannski liðið sem mun veita Arsenal mesta samkeppni?Guðmundur Aðalsteinn fékk Eið Orra Ragnarsson og Þorlák Breka Baxter, leikmenn Keflavíkur, í...