Skip to content
zeno
Create a Station
Explore
Religious
Music
News
Podcasts
Bible
By Genre
By Location
By Language
Download App
Opens in a new window
Toggle Sidebar
zeno
RÚV
Spegillinn
News & Politics
Icelandic
Fréttir og fréttaskýringar í útvarpi, þar sem kafað er dýpra í málin, þau sett í stærra samhengi og skýringa leitað.
Website
Episodes
Episodes
300
03 September 2026
Tillögur um rýmri heimildir í baráttur við skipulagða glæpi og hamfaraflóð
Lagt er til að breyta hegningarlögum, lögum um meðferð sakamála og lögreglulögum til að auðvelda baráttu við skipulagða glæpastarfsemi. Meðal annars er lagt til að hámarkslengd gæsluvarðhalds við rannsókn slíkra brota verði sex mánuðir í stað 12 vikna og heimildiir til að upptöku á ólögmætum ávinningi verði rýmkaðar. Rætt við Karl Steinar Valsson yfirlögregluþjón á öryggis- og greiningarsviði hjá...
20 min
02 September 2026
Viðbrögð við drónaárásum og líkur á átökum. Jón Ólafsson og Erlingur Erlingsson.
Þjóðverjar segja Rússa hafa staðið fyrir drónaárás á flugvellinum í Leipzig í ágúst og að stjórnvöld í Kreml taki mikla áhættu með aðgerðum sínum. Jón Ólafsson, prófessor, og Erlingur Erlingsson, hernaðarsagnfræðingur, ræða þýðingu þessa og stöðuna í erfiðum samskiptum Rússlands og vesturlanda.
20 min
01 September 2026
Drónaárásir í Þýskalandi, Unglingar og áfengisdrykkja og nýr kóngur í Noregi
Nýr kóngur í Noregi, aukin áfengisdrykkja meðal unglinga og drónaárásir í Þýskalandi eru umfjöllunarefni kvöldsins.
20 min
31 August 2026
Sjónvarpsfréttir hætta á Sýn, viðbrögð við niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu og lækkun fæðingartíðni
Minnkandi fæðingartíðni um allan heim og aukið sjálfstæði kvenna er efni nýrrar fræðigreinar Claudiu Goldin, prófessors við Harvard-háskóla og Nóbelsverðlaunahafa í hagfræði 2023.Þjóðaratkvæðagreiðsla helgarinnar og úrslit hennar hafa vakið viðbrögð hjá evrópskum fjölmiðlum og stjórnmálamönnum. Sjónvarpsfréttir Sýnar verða sendar út í síðasta sinn í kvöld. Stjórnendur fyrirtækisins segja...
20 min
28 August 2026
Umræður um ESB aðild í Noregi og stutt í þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna á Íslandi
Við verðum á þjóðaratkvæðagreiðslu-nótunum í dag. Meirihluti Norðmanna er sem fyrr andvígur því að ganga í Evrópusambandið en sífellt fleiri norskir stjórnmálamenn virðast telja að það verði erfiðara að ræða ekki um það. Og sérstaklega nú þegar þjóðaratkvæðagreiðslan um áframhald aðildaviðræðna Íslands við ESB fer fram. Að baki er um margt áhugaverð kosningabarátta tveggja fylkinga, Já til að sjá...
20 min
27 August 2026
Trump og Carney deila, Evrópusambandið stækkar og háskólamenntaðir þurfa lán frá öðrum en lánastofnunum við fasteignakaup.
Deilur um tollasamning snúast um margt en líklega síst eiginleg viðskipti. Eliza Reid segir skaðann sem þetta hefur valdið ekki hverfa svo glatt. Traustið sé rofið. Það lítur út fyrir að aðildarríkjum Evrópusambandsins fjölgi á næstu árum en viðhorf borgara sambandslandanna til þess eru misjöfn. Um 60% háskólamenntaðra, sem eru yngri en 45 ára, hafa fengið aðstoð frá öðrum en lánastofnunum við...
19 min
26 August 2026
Hvað er í húfi á laugardag? skattahækkanir á baðlón og áhrif hita og þurrka á vínuppskeru
Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við ESB á laugardag hefur áhrif á pólitískt landslag á Íslandi, hvort sem svar þjóðarinnar verður já eða nei. Eiríkur Bergmann Einarsson stjórnmálafræðingur fer nú yfir þau mál með okkur. Forsvarsmenn baðlóna hér á landi hafa gagnrýnt harkalega þá hugmynd að hækka virðisaukaskatt úr 11% í 24% á þeirra starfsemi. Slíkt er inn í...
20 min
25 August 2026
Uppsagnir hjá Reykjavíkurborg og rannsókn drónaárásar í Þýskalandi vindur upp á sig.
Tugum starfsmanna var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir að tillögur um skipulagsbreytingar voru samþykktar á aukafundi borgarráðs. Björg Magnúsdóttir og Heiða Björg Hilmisdóttir voru til viðtals. Misheppnuð drónaárás á flugvellinum í Leipzig í Þýskalandi í byrjun ágúst vindur upp á sig. Nú er talið að þrír drónar hafi verið notaðir í árásinni.
20 min
24 August 2026
Ofgnótt skoðana í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu og mál Lindsay Clancy í Bandaríkjunum.
Mál ungrar móður í Bandaríkjunum hefur vakið athygli um allan heim en hún er ákærð fyrir að hafa orðið þremur börnum sínum að bana. En málið hefur ekki bara vakið upp spurningar um sekt eða sakleysi hennar heldur hefur það einnig hrundið af stað umræðum um andlega heilsu mæðra og geðheilbrigðiskerfið í Bandaríkjunum. En við byrjum á þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildaviðræðna við...
19 min
21 August 2026
20 min